Þjóðhagsspá Íslandsbanka: Hægur vöxtur, vaxandi þróttur
Greining Íslandsbanka spáir fyrir um þróun efnahagsmála árin 2026-2028
Lesa þjóðhagsspáGreining Íslandsbanka spáir fyrir um þróun efnahagsmála árin 2026-2028
Lesa þjóðhagsspáÁrsverðbólga mælist 5,9% í september og hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Hækkun eldsneytisverðs, sem má að mestu rekja til loka tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts, vó þyngst til hækkunar en árstíðabundin lækkun flugfargjalda vó á móti. Útlit er fyrir að verðbólga haldist á svipuðum slóðum út árið en taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs.
Lesa greininguFramboð íbúða til sölu hefur aukist og samningsstaða kaupenda styrkst samhliða minni umsvifum á fasteignamarkaði. Hæg sala og uppsöfnun óseldra íbúða setja þó þrýsting á byggingaraðila og nú sjást skýr merki um samdrátt í uppbyggingu. Við spáum því að raunverð íbúða lækki áfram í ár og á næsta ári en að markaðurinn taki við sér þegar vextir lækka.
Lesa greininguKortavelta stóð í stað að raunvirði í september og dróst saman á þriðja ársfjórðungi, í fyrsta sinn síðan undir lok árs 2023. Væntingar heimila eru jafnframt aftur komnar í lággildi, þótt áform um stórkaup haldi nánast velli. Þróunin rímar við hægari vöxt einkaneyslu, en við gerum ráð fyrir að hún nái vopnum sínum á ný á næstu árum.
Verðbólga verður áfram þrálát út árið og þróun olíuverðs skapar nokkra óvissu um skammtímahorfurnar. Eftir áramót eru hins vegar horfur á hraðari hjöðnun og að verðbólga nálgist efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins á næsta ári.
Framboð íbúða til sölu hefur aukist og samningsstaða kaupenda styrkst samhliða minni umsvifum á fasteignamarkaði. Hæg sala og uppsöfnun óseldra íbúða setja þó þrýsting á byggingaraðila og nú sjást skýr merki um samdrátt í uppbyggingu. Við spáum því að raunverð íbúða lækki áfram í ár og á næsta ári en að markaðurinn taki við sér þegar vextir lækka.
Greining Íslandsbanka spáir fyrir um þróun efnahagsmála árin 2026-2028
Ársverðbólga mælist 5,9% í september og hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024. Hækkun eldsneytisverðs, sem má að mestu rekja til loka tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts, vó þyngst til hækkunar en árstíðabundin lækkun flugfargjalda vó á móti. Útlit er fyrir að verðbólga haldist á svipuðum slóðum út árið en taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs.
Hækkun olíuverðs á undanförnum vikum hefur breytt skammtímahorfum verðbólgunnar til verri vegar. Að okkar mati eru þó horfur til lengri tíma að mestu óbreyttar og gerum við ráð fyrir hægri hjöðnun verðbólgu á síðustu mánuðum ársins.
Kortavelta dróst saman að raunvirði í ágúst milli ára og hefur samdrátturinn ekki mælst meiri í tæp 3 ár. Það vekur sérstaka athygli að velta erlendis gefur nú eftir í fyrsta sinn í rúm tvö ár, en hún hefur verið helsti drifkraftur í vexti kortaveltunnar á þeim tíma. Þróunin styður þá mynd að þróttur einkaneyslu fari áfram minnkandi.
Væntingar heimila tóku talsverðan kipp í ágúst eftir að hafa mælst í mjög lágum gildum undanfarna mánuði. Þrátt fyrir hækkunina eru fleiri landsmenn enn svartsýnir en bjartsýnir á stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Verðbólga í ágúst er sú mesta í tvö ár og mælist langt yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga. Áhrif sólmyrkvans á vísitöluna reyndust takmörkuð en reiknuð húsaleiga, útsölulok og hækkun háskólagjalda vógu þungt í mánuðinum. Verðbólga mun haldist á svipuðum slóðum út árið áður en hún tekur að hjaðna hægt og bítandi í byrjun næsta árs.
Laun hækka nú hægar en nokkru sinni frá árinu 2020 og atvinnuleysi hefur á móti aukist jafnt og þétt. Staðan á vinnumarkaði er því verulega breytt frá því langtímakjarasamningar voru undirritaðir. Það setur trúlega mark sitt á endurskoðun samninganna vegna forsenduákvæðis þeirra í haust.
Kortavelta jókst lítillega að raunvirði í júlí miðað við sama mánuð í fyrra. Undanfarið hefur hægt á raunvexti kortaveltu, sem bendir til þess að þróttur einkaneyslu sé minni en áður. Sú þróun rímar við vísbendingar um vaxandi slaka í hagkerfinu.
Við spáum því að verðbólga aukist í 5,6% í ágúst og því virðist nokkuð ljóst að forsenduákvæði kjarasamninga mun virkjast. Vísbendingar eru um að sólmyrkvinn hafi tímabundið ýtt undir verðhækkanir í sumum liðum ferðaþjónustu, þótt áhrifin virðist takmörkuð. Horfur eru á að verðbólga verði áfram veruleg fram eftir haustinu.
Dregið hefur úr hækkunum á leigumarkaði og fylgir leiguverð nú verðlags- og launaþróun mun nánar en áður, eftir að hafa hlaupið langt fram úr hvoru tveggja á árunum 2023 og 2024. Eftirspurn hefur gefið eftir og hægt hefur á fjölgun nýrra leigusamninga.
Ársverðbólga mælist 5,3% í júlí. Hækkun flugverðs og reiknaðrar húsaleigu vó þyngst til hækkunar en sumarútsölur vógu til lækkunar á móti. Útlit er fyrir að verðbólga aukist á ný næstu mánuði og mælist talsvert yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst.
Spáin gerir ráð fyrir að ársverðbólga standi óhögguð í júlí. Útlit er fyrir að verðbólga aukist á ný næstu mánuði og mælist vel yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Verðbólgutölur í júlí verða jafnframt síðasta verðbólgumælingin áður en Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman um miðjan ágúst.
Væntingavísitala Gallup mælist áfram í mjög lágum gildum og hefur verið undir 100 stiga jafnvægisgildinu í tólf mánuði samfleytt. Þrátt fyrir það hefur stórkaupavísitalan hækkað tvo ársfjórðunga í röð, sem bendir til þess að heimilin séu þrátt fyrir allt reiðubúin að ráðast í stærri fjárfestingar.
Ársverðbólga mælist 5,2% í júní og hefur verið yfir 5% frá áramótum. Hækkun flugverðs hafði mest áhrif á mælinguna. Útlit er fyrir að verðbólga verði áfram þrálát og mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst.
Íbúðamarkaður hefur kólnað talsvert og raunverð íbúða lækkað síðan í ágúst í fyrra. Markaðurinn er þó ekki botnfrosinn og viðskipti eru enn til staðar. Í raun má að einhverju leyti skipta markaðnum í tvennt: nýbyggingar og eldri eignir. Útlit er fyrir rólegan markað næstu misseri og gerum við ráð fyrir áframhaldandi lækkun raunverðs á þessu ári.
Miðasölutekjur hafa hækkað um rúmlega 200% milli tímabila.
Ársverðbólga heldur áfram að hjaðna lítillega ef spáin rætist. Ef horft er til næstu mánaða mun verðbólga mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágústmælingunni. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum.
Hlutfall fyrstu kaupenda hefur haldið velli undanfarin misseri, en þeir hafa í auknum mæli þurft að aðlaga kaup sín breyttum aðstæðum. Verðbil milli fyrstu kaupenda og annarra kaupenda hefur víkkað á sama tíma og veðsetningarhlutfall fyrstu kaupenda hefur hækkað.